Paul Brown, vöruhönnuður, faðir og brimbrettakappi, fékk hugmyndina að Bibetta árið 2004 þegar að áhugi hans á brimbrettum og fjölskyldulífinu kom saman. Hann hafði prófað margar gerðir að smekkjum fyrir dóttur sína en fann engan sem honum fannst nógu góðir. Honum fannst neoprene efnið í blautbúningnum sínum fullkomið í þetta hlutverk, þar sem neoprene er náttúrulega vatnshelt, teygjanlegt, mjúkt, sterkt og endingargott auk þess sem það er nánast ekki hægt að festa bletti í því. Fullkomið í smekki!
Allir smekkirnir eru lausir við BPA, þalöt, PVC og AZO litarefni. Það er borin mikil virðing fyrir náttúrunni og því er notað endurunnið polyester í allar vörur, neoprene efnið brotnar niður í náttúrunni og umbúðirnar eru úr endurnýtanlegum efnum. Þá er áhersla jafnframt lögð á að hanna hlutina þannig að þeir endist sem allra lengst, sem hjálpar bæði umhverfinu og veskinu.